Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Kosið verður til bæjarstjórnar þann 16. maí. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ný skoðanakönnun Gallup sem birt er á fréttavefnum Vísi í dag sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í Vestmannaeyjum, eða 43,9 prósent. H-listinn, sem klofnaði út frá Sjálfstæðisflokknum árið 2018, mælist með 27,3 prósent fylgi, Eyjalistinn með 19,7 prósent og Miðflokkurinn með 9,2 prósent. Könnunin var framkvæmd frá 15. janúar til 2. febrúar og endurspeglar hug kjósenda áður en Miðflokkurinn tilkynnti framboð sitt í Eyjum. Miðflokkurinn tilkynnti formlega um framboð sitt 3. febrúar og verður þetta í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningum.

Ánægja með bæjarstjórann

Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi, sýnir könnunin einnig að tæplega 70 prósent Vestmannaeyinga eru ánægðir með störf Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra, sem hefur gegnt embættinu frá árinu 2018. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 30,8 prósent mjög ánægð með störf hennar og 35,6 prósent frekar ánægð. 23,1 prósent frekar óánægð og 10,4 prósent sögðust mjög óánægð.

Þátttakendur í könnuninni voru 320 manns og um 36,4 prósent þátttökuhlutfall, segir í umfjöllun Vísis.

Samanburður við sveitarstjórnarkosningarnar 2022

Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 44,1 prósent atkvæða og fjóra fulltrúa í bæjarstjórn, H-listinn (Fyrir Heimaey) fékk 35,7 prósent og þrjá fulltrúa, en Eyjalistinn fékk 20,2 prósent og tvo fulltrúa. Meirihluti bæjarstjórnar er sem kunnugt er, myndaður af H-listanum og Eyjalistanum.

Nýja könnunin bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi haldið fylgi sínu frá síðustu kosningum, á meðan H-listinn mælist með minna fylgi en áður. Eyjalistinn er með svipað fylgi og hann fékk í síðustu kosningum. Þetta gæti haft áhrif á myndun meirihluta eftir næstu kosningar, sérstaklega með tilliti til þess að Miðflokkurinn hefur nú tilkynnt framboð sitt og gæti haft áhrif á valdahlutföllin í bæjarstjórn. Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí nk..

Nýjustu fréttir

Fækkun skemmtiferðaskipa fram undan
Myndir: Karlakórinn söng sumarið inn í Eldheimum
„Tillaga Miðflokksins kom mér á óvart“
Sjómannskonur: Birna Karen
Aukið frelsi og sanngjarnt verð
Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.