Í kvöld er komið að Suðurkjördæmi í kosningaumfjöllun RÚV. Kjördæmaþættirnir eru sendir út í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV, www.ruv.is en einnig útvarpað á Rás 2. Útsendingin hefst klukkan 19:30 en oddvitar allra 11 framboðanna taka þátt í umræðunum. Fundurinn fer fram í Fjölbrautarskóla Suðurlands en hægt er að senda spurningar til frambjóðenda á vefsíðu RÚV, í tölvupósti eða af Facebook.