Kótelettur fyrir alla, konur og kalla

„Kæru konur í Vestmannaeyjum. Eftir öll þessi ár var okkur að berast til eyrna sá leiðinlegi misskilningur að margar konur halda að kótilettukvöldið væri bara fyrir karla. Að þetta væri karlakvöld sem er bara algjört bull, það koma margar konur á kvöldið og hafa gert öll árin okkar. Þið eru allar hjartanlega velkomnar á kótilettukvöldið nk. fimmtudag, munið bara að staðfesta komu ykkar, við tökum vel á móti ykkur,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum Kótilettuklúbbins sem slá upp sinni árlegu kótilettuveislu í Höllinni annað kvöld.

Borðhald hefst kl. 19:00 og verður boðið upp á kótilettuveislu að hætti Gunna kokks og hans fólks. Það er enginn sem kann að galdra fram kótilettuveislu eins og Gunni, og því má gera ráð fyrir ríkulegu kvöldi bæði hvað varðar mat og stemningu.

Í ár rennur ágóði kvöldsins til þriggja mikilvægra verkefna:

  • Krabbavörn Vestmannaeyja, sem veitir einstaklingum og aðstandendum stuðning þegar greinst er með krabbamein.
  • Bjargið, stuðningsúrræði fyrir þá sem búa í heimahúsum en þurfa eftirlit og umsjón til að geta haldið áfram búsetu heima. Umsjónarkona Bjargsins er Ragnheiður Geirsdóttir.
  • Hugarró á Hraunbúðum, klúbbur sem hvetur heimilisfólk til virkni og tómstunda. Sonja Andrésdóttir, virknis- og tómstundafulltrúi leiðir starfið þar.

Í fyrra voru seldir 321 skammtar, og nú er hvetja alla til að mæta og hjálpast að við að slá það met.

Kótilettudagurinn hefur í gegnum árin ekki aðeins verið hátíð fyrir bragðlaukana heldur einnig mikilvæg fjáröflun sem styrkir samfélagið.

Nánari upplýsingar um aðgangseyri, greiðslufyrirkomulag og pöntun hráefnis er að finna á Fésbókarsíðu Kótelettuklúbbsins.

 

Nýjustu fréttir

Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.