�?að er gaman og gefandi að hafa áhrif til góðra verka og undanfarin ár hef ég einbeitt mér að því að vinna í þágu minnar heimabyggðar. Staðbundin stjórnmál hafa freistað mín og ég hef gaman af starfi mínu sem bæjarfulltrúi í Grindavík. �?g hafði engin áform um að leggja lóð mín á vogaskálar þeirra sem buðu fram til þings. Einfaldlega vegna þess að ekkert þeirra framboða sem þar var heillaði mig – fyrr en Viðreisn kom fram. Stjórnmálaafl sem er reiðubúið að leggja sig fram í mikilvægar kerfisbreytingar sem munu skila sér verulega til almennings í landinu.
Stjórnmálaflokkar og stjórnvöld eiga alltaf að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum. �?etta ein af grunnstefnum Viðreisnar. �?að skiptir máli að rugla ekki kjósendur með orðagjálfri. Stefnan þarf að vera skýr og kjósendur þurfa að meta nokkra kosti áður en þeir ganga að kjörborðinu 29. október næstkomandi. Skýr stefna og raunhæfar leiðir skipta máli. �?að er aldrei sanngjarnt að boða óraunhæfa kosti eða stefnu sem kallar á verulega aukið fjármagn á sama tíma og við viljum hóflegar álögur. Forgangsröðun þarf að vera á hreinu. �?au eru fjölmörg stefnumál Viðreisnar. Eitt þeirra eru nýjar leiðir í kvótakerfinu. Leiðir sem kollvarpa engu en skila auknum auðlindatekjum til þeirra sem auðlindina eiga – þjóðarinnar.
Umræðan um auðlindir landsins og nýtingu þeirra hefur verið mikið í umræðunni. Viðreisn ætlar að beita sér fyrir markaðslausn í sjávarútvegi. �?að er stefna okkar að auka tekjur ríkisins af sjárvarauðlindinni með því að fara svokallaða markaðsleið. Hluti (3-5%) þess heildarkvóta sem úthlutað er ár hvert er boðinn upp árlega á markaðsvirði. Við trúum því að með þeirri leið sé ekki verið að ógna rekstargrundvelli þeirra fyrirtækja sem stunda sjávarútveginn en sanngjarnt markaðsverð fyrir þann kvóta sem færi á uppboð myndi skila sér til þjóðarinnar. �?að verði ekki í höndum stjórnvalda að ákveða hversu hátt auðlindagjaldið ætti að vera. �?ví yrði einfaldlega skipt út fyrir tekjurnar af uppboðskvótanum. Nýtingartími þessa uppboðskvóta yrði sá sami og þeirra sem hafa afnot á núverandi kvóta.
�?að hefur í gegnum tíðina mikið verið rætt um sanngirni þess hvernig kvótanum var úthlutað fyrir þremur áratugum þegar kvótakerfið var sett á. �?að er ekki sanngjarnt að færa óréttlæti af einum stað yfir á annan. �?essa lausn tel ég vera best til þess fallna til að sætta málefnin er varða sjávarauðlindina og þær tekur sem af henni skapast.
Kosningar til Alþingis eru handan við hornið. Einhverjar þær mikilvægustu og þýðingarmestu í sögunni. �?að verður kosið um kerfisbreytingar í þágu þjóðarinnar. �?að verður kosið um almannahagsmuni ofar sérhagsmunum. Fyrir þeim breytingum mun Viðreisn standa.
Kristín María Birgisdóttir skipar 5. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi.