Kryddjurtir í gluggann

Undanfarið hefur Umhverfi Suðurland birt punkta forræktun matjurta fyrir sumarið en heppilegt er að byrja á slíkum vorverkum í mars eða apríl. Fyrir þá sem fyllast verkkvíða er gott að vita að einnig er hægt að fara styttri leiðina og kaupa eða fá plöntu til að sinna heima. Kryddjurtir eins og basil, steinselja, mynta, kóríander, graslaukur og fleiri eru aðgengilegar í matvöruverslunum og lítið mál að umpotta eða planta þegar heim er komið. Kryddjurtum er gjarnan sáð mjög þétt fyrir matvöruverslanir og því ráð að ná þeim í sundur við rótina og umpotta með góðu plássi svo hver planta fái að njóta sín og þær kæfi ekki hverja aðra. Kryddjurtir þarf að vökva mjög vel, sérstaklega meðan hún rótar sig í nýjum potti, og halda á björtum stað, t.d. eldhúsglugga. Klippa má ofan af plöntunum og nýta beint í mat en þannig verður hún einnig mjög þétt og falleg. Við hvetjum sunnlendinga til að spreyta sig á eigin ræktun og deila afrakstrinum á #umhverfissudurland

Nýjustu fréttir

Svipmyndir frá sjómannagleði við sjávarsíðuna
Stjána á Emmunni þakkað fyrir ómetanlegt starf
Fjörugt föstudagskvöld með SSSól í Eyjum
Gætti vandlega að græna litnum á Ísleifunum
Sjómannadagskrá laugardags
Sjómannskonur: Ásta Jóna
Bærinn skýrir ástandið í Búastaðagryfju
Blómaakkeri prýðir Stakkagerðistúnið fyrir sjómannadaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.