Kubuneh verslun með notuð föt opnar
Þóra Hrönn og Sunna dóttir hennar við afgreiðsluborðið í versluninni Kubuneh

Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir opnaði í dag nýja fataverslun sína við Vestmannabrautar 37. Þóra ætlar eingöngu að vera með til sölu notuð föt eða „second hand“ eins og það er kallað, en Þóra Hrönn er mikil áhugamanneskja um endurvinnslu og bætta nýtingu. Verslunin heitir Kubuneh (borið fram Kúbúne) en það er nafnið á þorpi í Gambíu þar sem Þóra hefur komið að hjálparstarfi.

“Allir skipta máli” er góðgerðarfélag sem Þóra er í forsvari fyrir. Allir skipta máli mun um áramótin taka við rekstri á heilsugæslu í þorpinu Kubuneh í Gambíu. Í því felst m.a að greiða laun starfsfólks og lyf fyrir sjúklinga. Árlega leyta 12-15.000 manns til heilsugæslunnar.  Öll vinna við verslunina er unnin í sjálfboðastarfi og fer hver króna sem kemur inn beint í verkefni félagsins.

Þóra Hrönn telur að vel sé tækifæri fyrir verslun eins og þessa. „Hugarfarið er að breytast hjá fólki það sést best á öllum Loppu búðunum í Reykjavík.  Unga fólkið sem er að koma upp fjölskyldum í dag hugsar öruvísi en við gerðum, fólk er meðvitaðra um umhverfismál og endurnýtingu.  Unga fólkið vill frekar nota launin sín í að búa til minningar en að kaupa hluti.”

 

Nýjustu fréttir

ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap gegn Val
Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.