Kveðjuorð
Bergvin Oddsson verður jarðsunginn frá Landakirkju í dag kl 14.00

Í dag verður Beddi á Glófaxa, jarðsunginn frá Landakirkju.

Það verður að segja eins og er að fréttin um andlát Bedda, kom eins og köld vatnsgusa. Beddi hafði reyndar átt við veikindi að stríða, en það var ekki öllum ljóst hversu alvarleg þau voru, hann alltaf svo hress og kátur. Við Beddi áttum samleið í pólitíkinni sem og í Kiwanis og víðar. Báðir Kratar sem söknuðu Alþýðuflokksins og held ég að honum  hafi, eins og mér, fundist bara kominn tími á að endurvekja okkar gamla og góða flokk, sem alla tíð barðist fyrir auknum jöfnuði og ekki síst fyrir þá sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Beddi var farsæll skipstjóri og útgerðarmaður sem hugsaði vel um sína. Hann var þekktur fyrir greiðvikni og ef hann taldi sig geta komið að liði stóð ekki á hjálpinni. Meðal annars lét hann fjármuni renna til ýmissa góðra verka og sem betur fer fyrir æskulýðinn hér í Eyjum styrkti hann og fjölskylda íþróttirnar veglega og það til fjölda ára. Þetta þekkja allir í okkar góða samfélagi. Með þessum fátæklegu orðum vil ég kveðja góðan samferðamann og félaga til fjölmargra ára.

Fjölskyldu Bedda sendi ég og fjölskylda mín, innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Bedda.

Guðmundur Þ. B. Ólafsson.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.