Kveikt verður á jólatrénu á Stakkó á föstudag
Dagskráin hefst kl 17:00 föstudaginn 28. nóvember.

Kveikt verður á jólatréinu á Stakkó næstkomandi föstudag við hátíðlega athöfn. Dagskráin byrjar stundvíslega kl 17 og mun Lúðrasveit Vestmannaeyja hefja dagskrána með nokkrum lögum.

Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar, mun flytja ávarp og mun barnakórinn Litlu lærisveinarnir, undir stjórn Kitty Kovács, syngja nokkur lög. Viðar prestur verður einnig með stutt ávarp.

Að því loknu mun Páll Magnússon kalla Davíð Erni til sín til að kveikja á jólatrénu. Í framhaldinu stíga jólasveinarnir á svið og syngja með börnunum. Nammigjöf jólasveinanna fer fram í öðrum skúrnum, þar sem Putti og félagar úr Skilaboðaskjóðunni afhenda börnunum sælgæti. Þegar búið er að kveikja á trénu gefst krökkunum kostur á að fá myndir með jólasveinunum.

Meistaraflokkur kvenna í fótbolta verður með til sölu kaffi, heitt súkkulaði og smákökur á svæðinu.

Opnuð verður sýning á jólamyndum sem nemendur í 1. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja hafa teiknað á gjafakort Vestmannaeyjabæjar. Sýningin fer fram á Bókasafni Vestmannaeyja og verður opin til klukkan 18:00.

Í tilefni af svötum föstudegi verður lengri opnun í verslunum bæjarins eða til kl 22:00.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.