Kyn­ferðis­brot­um fjölg­ar um 75% á milli ára hjá lög­regl­unni í Vest­manna­eyj­um.
Í um­dæm­um lög­regl­unn­ar á Suður­landi og í Vest­manna­eyj­um hef­ur kyn­ferðis­brot­um fjölgað veru­lega á milli ára. Árið 2016 voru 25 brot á Suður­landi, en á nýliðnu ári voru þau 42, sam­kvæmt bráðabirgðatöl­um sem birt­ar voru í gær. �?ar af voru níu nauðgan­ir. Í Vest­manna­eyj­um voru kyn­ferðis­brot­in átta árið 2016 en fjór­tán í fyrra, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá embætt­inu.
Aukn­ing­in á milli ára er þannig 68% á Suður­landi og 75% í Vest­manna­eyj­um.
Páley Borgþórs­dótt­ir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyj­um, sagði sam­tali við mbl.is að þau gætu notað meiri mann­skap til að tak­ast á við auk­inn brota­fjölda í þess­um mála­flokki. �??�?að þarf að bæta í þenn­an mála­flokk fjár­magni til að halda í við þetta, svo að rann­sókn­irn­ar gangi vel og máls­hraðinn sé eðli­leg­ur. Ef þú lít­ur á máls­hraðann í heild, í kyn­ferðis­brot­um, þá er hann orðinn svo­lítið lang­ur, ef mál­in fara alla leið upp í dóm. �?að er þung­bært fyr­ir fólk sem stend­ur í þess­um mál­um að máls­hraðinn skuli ekki vera betri hjá okk­ur. Eina leiðin til þess að bæta úr því er meiri mann­skap­ur,�?? seg­ir Páley, en ein­ung­is einn rann­sókn­ar­lög­reglumaður er starf­andi hjá lög­regl­unni í Vest­manna­eyj­um.
Tölu­vert um að göm­ul brot séu til­kynnt
Páley seg­ir sömu­leiðis að henni hafi fund­ist sem of fá kyn­ferðis­brota­mál hafi verið að koma inn á borð lög­reglu síðustu ár. �??�?essi aukn­ing á sér von­andi þær skýr­ing­ar að fólk sé að leita til lög­reglu vegna þess­ara brota,�?? seg­ir Páley. Já­kvætt sé að fólk leiti til lög­reglu. Ein­hver hluti þess­ar­ar aukn­ing­ar eru brot sem fólk er fyrst núna að til­kynna, en áttu sér mögu­lega stað fyr­ir mörg­um árum eða jafn­vel ára­tug­um síðan. �??Ein­hver sem er full­orðinn í dag get­ur verið að til­kynna brot gegn sér þegar hann var barn,�?? seg­ir Páley.
Hún seg­ir ljóst að á litlu svæði eins og Vest­manna­eyj­um sé aukn­ing­in gríðarleg á milli ára og stór­auki álagið, sér­stak­lega þar sem rann­sókn­ar­deild­in sé bara einn maður. �??Hér eru þung mál í vinnslu. Kyn­ferðis­brot­in taka tíma og eru þung,�?? seg­ir Páley. – Hægt er að lesa meira um málið á mbl.is

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.