Kynningarfundur um nýtt íþróttafræðinám HR í Vestmannaeyjum

Í dag miðvikudaginn 4. mars, kl. 12:00, verður haldinn opinn kynningarfundur um nýtt íþróttafræðinám Háskólans í Reykjavík í Vestmannaeyjum. Fundurinn verður í Þekkingarsetri Vestmannaeyja, Ægisgötu 2. Hafrún Kristjánsdóttir, deildarforseti íþróttafræðideildar HR, Erlingur Richardsson, umsjónarmaður námsins og útskrifaðir íþróttafræðingar úr HR sem búa og starfa í Vestmannaeyjum, munu kynna námið og fyrirkomulag þess, aðstöðuna sem í boði er, atvinnumöguleika íþróttafræðinga og ýmislegt annað sem að náminu snýr. Allir sem áhugasamir eru um námið eru hvattir að mæta.

Frá og með haustinu 2020 geta nemendur stundað BSc-nám í íþróttafræði við HR í blöndu af staðarnámi og fjarnámi í Vestmannaeyjum. Námið gefur íþróttafólki í Eyjum tækifæri til að stunda háskólanám samhliða æfingum og keppni. Fyrsta skólaárið verða sex námskeið kennd í fjarkennslu í gegnum fjarfundabúnað í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Tvö verkleg námskeið verða kennd í Vestmannaeyjum, nemendur ljúka tveimur þriggja vikna námskeiðum í Reykjavík en taka öll skrifleg próf í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Kennarar frá HR koma til Vestmannaeyja tvisvar sinnum á önn til að vinna með nemendum. Síðasta árið í náminu verður kennt í staðarnámi í HR.
Hægt er að lesa meira um íþróttafræði við HR á vefnum: hr.is/ithrottafraedi

Nýjustu fréttir

Umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar afhentar
Herrakvöld handknattleiksdeildar á laugardaginn
Bæjarstjórn fundar – fylgst með fundinum í beinni
Feta slóð Flakkarans um hraunið
H-verslun heldur annað hlaup í Eyjum
Önnur uppsögn starfsmanns Vestmannaeyjabæjar úrskurðuð ólögmæt
Framkvæmdir við innisundlaugina langt fram úr áætlun
Börnin eru ekki vandamálið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.