Kynnti sér ferðaþjónustu á landsbyggðinni
mynd nr1 - Copy (1)
Frá Mannamótum. Ljósmynd/Menningar- og viðskiptaráðuneytið.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti Mannamót Markaðsstofu landshlutanna sem fram fór í Kórnum í Kópavogi. Mannamót Markaðsstofa landshlutanna er árleg ferðakaupstefna sem haldin er af Markaðsstofum landshlutanna og var lokaviðburður Ferðaþjónustuvikunnar í ár.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar.

„Mannamót dregur fram með mjög skýrum hætti hversu fjölbreytt úrval af flottri afþreyingu og ýmiskonar þjónustu er hringinn í kringum landið. Eitt af áherslumálum mínum sem ráðherra er að stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um landið, sér í lagi utan háannar sem bætir nýtingu innviða í ferðaþjónustu treystir rekstrargrundvöll fyrirtækja í greininni,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

Ferðaþjónustuvikunni 2024 er nú formlega lokið en menningar- og viðskiptaráðherra opnaði vikuna með ávarpi á Nýársmálastofu SAF, Íslenska ferðaklasans og KPMG, segir í tilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

Frekari upplýsingar um viðburðina og upptökur má finna á vef Ferðamálastofu.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.