Lítillar flugvélar með tveimur mönnum innanborðs var saknað milli lands og Eyja, merki barst frá neyðarsendi vélarinnar um þremur mínútum eftir flugtak frá Vestmannaeyjum. Golfari féll í Kaplagjótuna þegar hann var að leita að kúlunni sinni, maður hrapaði við lundaveiði norðan við Miðklett, leitað var að mönnum á tuðru, maður lenti í sjónum við Ræningjatanga og nokkrir slösuðust um borð í Víkingi þegar hann sigldi á bryggju. �?etta voru meðal hátt í þrjátíu verkefna sem leyst voru í æfingu Landsbjargar sem fram fór í Vestmannaeyjum um helgina. Í allt tóku 24 sveitir þátt í æfingunni sem tókst vel að mati formanns Björgunarfélags Vestmannaeyja, Arnórs Arnórssonar.
�??Landæfingar eru haldnar annað hvert ár hjá Landsbjörgu og sjóæfingar árið á móti en við keyrðum þetta saman,�?? segir Arnór. �??Undirbúningur var allur á okkar herðum en við gátum leitað aðstoðar hjá starfsfólki Landsbjargar sem var boðið og búið að aðstoða okkur.�??
Í allt tóku tæplega 200 manns þátt í æfingunni frá 24 sveitum, allt frá Ísafirði, suður og austur um að Hornafirði. Nokkrar komu með báta sem voru alls sex á æfingunni. �??�?fingin hefur ekki farið fram hjá fólki því hún fór fram út um alla Eyju og á sjónum í kring. Við vorum með bílhræ við Fesið og Bjarnaborg og svo var mikið um að vera í fjöllum og klettum þar sem við vorum að koma fólki sem lent hafði í vandræðum til hjálpar.�??
Stærsta verkefnið var þegar Víkingur sigldi á bryggju og fólk um borð slasaðist. Hjálp barst bæði af sjó og landi og lágu �??sjúklingar�?? misjafnlega slasaðir um allt skip. Björgunarfólkið gekk vasklega til verks og sýndi að það kann að bregðast við erfiðum aðstæðum. �??�?etta gekk vel eins og önnur verkefni sem lögð voru fyrir fólkið. �?að var kannski helst að það væri of margt björgunarfólk um borð í Víkingi en þetta gekk vel eins og ég sagði hér á undan. �?að eina sem var til vandræða var veðrið á sjónum en við fluttum sjóæfinguna í skjólið á Stakkabótinni þannig að það bjargaðist,�?? segir Arnór.
�?llu var stjórnað í stjórnstöð Almannavarna í Skátaheimilinu við Faxastíg. �??�?ll fjarskipti voru í góðu lagi og fólk fljótt að átta sig á aðstæðum. �?að var gaman að fá allt þetta fólk hingað og sjósveitin í Kópavogi lét sig hafa það að sigla hingað sem sýnir áhugann. �?g vil þakka þessu fólki, okkar fólki og þeim sem lögðu okkur lið hér í Eyjum. Simmi lánaði okkur Víking, við fengum aðstöðu í Fesinu, Vinnslustöðin leyfði okkur að vera um borð í Sighvati Bjarnasyni, Eimskip hleypti okkur í kranann, Kubbur gerði allt fyrir okkur sem við báðum um og Vestmannaeyjabær veitti okkur ómetanlega aðstoð. Einnig má ekki gleyma að þakka Olla í krónunni og Stofunni Bakhús fyrir mikla aðstoð með matvælin. �?etta var lærdómsríkt fyrir okkur og héðan fóru flestir sáttir,�?? sagði Arnór formaður að endingu.