Lætur af störfum eftir 23 ára starf
golf_sigursv_elsa_fb_cr
Sigursveinn Þórðarson formaður GV og Elsa Valgeirsdóttir. Ljósmynd/Golfklúbbur Vestmannaeyja

Elsa Valgeirsdóttir var heiðruð á aðalfundi Golfklúbbs Vestmannaeyja sem fram fór nýverið.

Elsa hefur verið framkvæmdastjóri klúbbsins undanfarin 23 ár en hefur látið af störfum. Karl Haraldsson hefur verið ráðinn í hennar stað.

Í tilkynningu á heimasíðu GV segir að Elsa hafi unnið ótrúlegt starf fyrir klúbbinn.

„Hún hefur gengið í öll störf innan félagsins. Elsa hefur verið driffjöður í uppbyggingu og rekstri félagsins undanfarna þrjá áratugi og er félagið lánsamt að hafa fengið að njóta krafta hennar allan þennan tíma.“

Elsa var heiðruð af ÍBV héraðsambandi fyrir störf sín og fékk hún gullmerki félagsins. Golfklúbbur Vestmannaeyja vill koma á framfæri þakklæti til Elsu fyrir óeigingjarnt starf fyrir félagið.

Nýjustu fréttir

Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.