Lætur af störfum eftir 36 ára starf
4. júní, 2024
Gudjon-Palsson-kvaddur-jun-2024-GA
Guðjón Pálsson kvaddur á verkstæði Bergs-Hugins. Guðjón til vinstri og Arnar Richardsson rekstrarstjóri til hægri. Ljósmynd/Guðmundur Alfreðsson

Guðjón Þorkell Pálsson hóf störf á vélaverkstæðinu hjá Bergi – Hugin í Vestmannaeyjum þann 1. mars árið 1988. Guðjón verður sjötugur 15. júlí næstkomandi og lét af störfum vegna aldurs í byrjun apríl sl.

Haft er eftir Guðjóni á fréttasíðu Síldarvinnslunnar í dag að það hafi verið erfitt að hætta og það tekið hann nokkurn tíma, en hann segist hafa viljað hætta áður en sumarið gengi í garð.

Alltaf nóg að gera

Störf Guðjóns hafa verið afar fjölbreytt í gegnum tíðina en hann er lærður vélvirki.

„Ég byrjaði hjá Bergi-Hugin árið 1988 en þá hafði ég unnið í tíu ár hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Ég lærði vélvirkjun hjá Vélsmiðjunni Magna og að námi loknu hef ég starfað á vélaverkstæðum sjávarútvegsfyrirtækja. Hér áður fyrr fór ég að vísu á sjó eina og eina vertíð til að breyta til. Þegar ég byrjaði hjá Bergi – Hugin var einmitt verið að byrja að gera út frystitogarann Vestmannaey. Það var ávallt mikið af verkefnum á vinnsludekki togarans og menn þurftu að leysa hin fjölbreyttustu vandamál. Vestmannaey var gerð út sem frystitogari í heil 19 ár og ekkert Eyjaskip hefur verið gert út jafn lengi á frystingu. Að því kom árið 2005 að frystitogarinn var seldur og í stað hans komu tveir ísfisktogarar. Það breyttist mikið hjá okkur á verkstæðinu við þessi tímamót en það var alltaf nóg að gera.
Fyrir utan vinnu við skipin var fengist við ýmislegt, til dæmis settum við upp loðnuhrognastöð á Seyðisfirði á sínum tíma. Ég hef verið afskaplega heppinn með vinnufélaga á verkstæðinu en þar vann ég til dæmis nánast allan tímann með Guðmundi Alfreðssyni. Þá hefur samstarfið við vélstjórana á skipunum verið einstaklega gott en það skiptir ótrúlega miklu máli fyrir fyrirtæki eins og þetta að hafa góða vélstjóra. Eins hefur sambandið við stjórnendur fyrirtækisns verið eins og best verður á kosið. Í sannleika sagt hefur gangur þessarar útgerðar verið ævintýri líkastur upp á síðkastið. Bæði Vestmannaey og Bergur hafa landað fullfermi tvisvar í viku, fiskiríið hefur verið engu líkt. Þessi skip eru afar vel heppnuð og það hefur verið skemmtilegt viðfangsefni að fást við viðhald þeirra og sinna þeim breytingum og lagfæringum sem hafa verið gerðar,”

segir Guðjón.

Næg verkefni framundan

Guðjón mun hafa nægum verkefnum að sinna eftir að hafa kvatt verkstæðið hjá Bergi – Hugin. Hann hefur verið mjög virkur í félagsstörfum í Eyjum og mun halda því áfram jafnvel af meiri krafti en áður.

„Ég mun hafa nóg fyrir stafni. Það eru víða verkefni sem svona kallar eins og ég geta hjálpað til við. Ég hef verið lengi í Björgunarfélaginu og ég spila golf. Þá hef ég verið í veiðifélagi sem fæst við lundaveiði. Eins er ég félagi í Akóges, sem er karlaklúbbur og góður félagsskapur. Nú er verið að stækka Akóges-húsið hér í Eyjum og þar er fullt af verkefnum. Ég haf starfað lengi fyrir ÍBV í tengslum við Þjóðhátíð. Nú vinn ég við að endurbyggja grindurnar á svonefnda bekkjabíla sem hafa ekki verið notaðar í tugi ára. Bekkjabílarnir flytja fólk í Herjólfsdal og til baka í bæinn. Ég hef sko ekki áhyggjur af því að verða verkefnalaus. Það er alls staðar fullt af góðum verkefnum sem ánægjulegt er að vinna að.”

Guðjóns verður saknað

Bergur – Huginn hélt kveðjuhóf fyrir Guðjón fimmtudaginn 30. maí sl. Arnar Richardsson rekstrarstjóri sagði þar nokkur orð og lagði áherslu á mikilvægi þess starfs sem Guðjón hefur gegnt. Arnar vakti athygli á því hve verkefni Guðjóns hafa verið fjölbreytt og hve úthaldgóður hann hefði verið en starfstími hans hjá Bergi – Hugin var rúm 36 ár eða í 13.244 daga. Arnar sagði að ávallt hefði vakið athygli hve úrræðagóður Guðjón væri. Hann hefði fundið lausnir á hinum flóknustu vandamálum. Eins fullyrti Arnar að Guðjóns yrði sárt saknað á kaffistofunni því hann væri sögumaður góður og skemmtilegur félagi. Að lokum þakkaði Arnar Guðjóni innilega framlag hans til Bergs – Hugins og samfélagsins í Eyjum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 1 Tbl 2025
1. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst