Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE hafa landað fullfermi í Neskaupstað í gær og í dag. Vestmannaey landaði í gær og hélt til veiða strax að löndun lokinni. Í kjölfar Vestmannaeyjar kom Bergey einnig til hafnar í gær og hófst löndun úr henni í morgun.
Rætt er við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar um gang veiðanna. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að túrinn hefði að mestu einkennst af reitingsveiði. „Aflinn var mest ýsa og dálítill þorskur með. Við byrjuðum á að taka eitt hol á Víkinni, síðan var keyrt á Höfðann og tekin tvö hol þar. Þaðan var haldið í lónsbugtina og endað var á Undirbyrðishrygg eða nyrst á Papagrunni. Við höfum gjarnan veitt úti fyrir suðausturlandi að lokinni vetrarvertíð en af og til þó veitt fyrir vestan eins og þegar þurft hefur að sækja karfa. Fiskurinn sem við erum með núna er þokkalegur miðað við árstíma. Við reiknum með að vera tvo næstu túrana úti fyrir suðausturlandinu og eltast þar við ýsu. Reyndar höfum við alloft haldið okkur á þessum suðausturmiðum einnig í júnímánuði,” sagði Birgir Þór.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að vel hefði gengið að fiska eftir að austur var komið en í byrjun túrs hefði verið reynt við ufsa með litlum árangri. „Aflinn í túrnum var að mestu ýsa og það veiddist vel af henni undir lok túrsins. Við byrjuðum á Víkinni og fengum aðeins þorsk þar. Síðan var reynt við ufsa í Reynisdýpi, Kötlugrunni, Síðugrunni og Skeiðarárdýpi með heldur dapurlegum árangri. Loks var keyrt austur á Undirbyrðishrygg og þar var hörkuýsuveiði. Þessi túr tók þrjá sólarhringa höfn í höfn og gekk vel þó svo að tími færi í að leita að ufsanum. Við munum halda til veiða á ný fljótlega eftir löndun og ekki er ósennilegt að við förum á svipaðar slóðir og við enduðum á í síðasta túr. Við munum taka tvo til þrjá túra fyrir sjómannadag og ekki er ósennilegt að við höldum okkur á miðunum úti fyrir landinu suðaustanverðu,” sagði Jón.