Landeyjahöfn - Nægt dýpi og hagstæð ölduspá næstu daga
samanburdur.grd
Vel lítur út með siglingar í Landeyjahöfn. Bæði er að dýpi virðist í góðu lagi og ölduspá er hægstæð næstu viku nema hvað ölduhæð fer yfir tvo metra á morgun um tíma. Næstu daga og fram í næstu viku gerir ölduspá ráð fyrir ölduhæð rétt um og yfir einum meter.
Dýpi var mælt í Landeyjahöfn í gær og kom það mjög vel út eins og sést á meðfylgjandi korti. Ef eitthvað þarf að laga er dæluskip til staðar og ætti að geta dælt í dag miðað við ölduspá. �?að ætti einnig að geta athafnað sig eftir morgundaginn. �?essi mæling miðast við svo kallaða núllstöðu. Á flóði bætast því við 2 til 3 metrar.
Í október var lítið siglt í Landeyjahöfn og vandinn er að núverandi Herjólfur er mjög illa fallinn til að sigla í Landeyjahöfn. Skrokkslagið og eðli skipsins gerir það að verkum að hann er viðkvæmur fyrir þeim aðstæðum sem eru við Landeyjahöfn. �?að er í raun ótrúlegt hvað hæfum skipstjórnendum hefur tekist að nýta hann seinustu ár. �?að er hinsvegar alveg ljóst að á meðan mörk þessa skips liggja við 2,5 metra ölduhæð þá er og verður erfitt að nýta höfnina á veturna og haustin.
Núna þegar dýpið er nægt verðum við Eyjamenn , eins og seinustu ár, að óska þess að veður verði mjög got og sjór stilltur. �?á er ef til vill einhver von um nokkrar ferðir í viðbót.

Nýjustu fréttir

Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.