Landsbankinn og GRV saman um gangbrautavörslu

Nemendur í 10. bekk í GRV munu standa fyrir gangbrautavörslu á nokkrum fjölförnum gangbrautum á morgnana í svartasta skammdeginu með það fyrir augum að auka öryggi yngri nemenda á leið sinni í skólann. Þetta er frábært verkefni sem eflir samfélagsvitund og samkennd og gefur nemendum tækifæri að taka þátt í samfélagsmálum á ábyrgan hátt.

Þetta er í fimmta sinn sem 10. bekkur sinnir þessu verkefni og mun það byrja næstkomandi mánudag, 7. nóvember, og mun standa til 4. mars 2023. Lögreglan í Vestmannaeyjum mun að sjálfsögðu vera áfram með venjubundið eftirlit við skólana og vera nemendum innan handar ef þörf er á.

Gangbrautirnar sem nemendur vakta eru þrjár; á Skólavegi, á Kirkjuvegi við Vallargötu og við Hraunbúðir. Gangbrautaverðirnir verða vel sýnilegir í gulum vestum og munu leggja sig fram við að aðstoða yngri nemendur í umferðinni.

Líkt og áður kemur Landsbankinn að verkefninu með veglegum styrk í ferðasjóð 10. bekkja í GRV og útvega vesti fyrir gangbrautaverðina. Landsbankinn vill með þessu framlagi leggja sitt lóð á vogarskálarnar þegar kemur að öryggi barna og unglinga í umferðinni í Vestmannaeyjum.

Við í Grunnskóla Vestmannaeyja þökkum Jóni Óskari Þórhallssyni, útibússtjóra Landsbankans í Vestmannaeyjum kærlega fyrir samstarfið.

Grunnskóli Vestmannaeyja

Kær kveðja, Ásdís Steinunn Tómasdóttir, deildarstjóri unglingastigs í GRV.

Gleði – Öryggi – Vinátta

 

Nýjustu fréttir

Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.