Lundaballið – Helliseyingar toppuðu sjálfa sig
Fólk mætti í sínu fínasta pússi.

„Það var troðfullt og allt mjög skemmtilegt, skemmtiatriði á heimsmælikvarða, töframaður sem galdraði fólk upp úr skónum, söngur og skemmtilegt fréttaskot frá Sýn sem sýndi þá yfirburði sem Helliseyingar hafa yfir öll félög bjargveiðimanna í Vestmannaeyjum,“ sagði Óskar Pétur, ljósmyndari sem myndaði af miklu móð á Lundaballinu í Höllinni á laugardagskvöldið.

„Ballið var, eins og við var að búast það glæsilegasta í áratuga sögu Lundaballa í Vestmannaeyjum. Helliseyingar eru ekki bara manna skemmtilegastir þeir eru líka söngmenn miklir. Mátti sjá tár á hvörmum kvenna þegar þeir tóku lagið, hver með sínu nefi. Stúlkur frá Fimleikafélaginu Rán sýndu listir sínar og fengu mikið lof fyrir. Finna verður upp ný lýsingarorð í Íslensku til að lýsa matnum sem Einsi kaldi og hans fólk bar fram. Fjölbreytnin ótrúleg og lundinn að sjálfsögðu í öndvegi,“ sagði Óskar Pétur og hélt áfram.

„Helgi Braga og Sindri Ólafs stýrðu veislunni af miklum glæsibrag og Jói Pé var með stórkostlega myndasýningu að hætti hússins. Marinó Sigursteinsson pípari og Halldór Sveinsson lögreglumaður voru heiðraðir sérstaklega. Jarl Sigurgeirs stýrði fjöldasöng af miklu móð og reglulega var staðið upp og söng hvert borð sinni eyju lof og prís. Létt skot gengu á milli og allt var þetta í hærri hæðum en áður hefur sést og heyrst á Lundaböllum. Suðureyingar sem verða með næsta Lundaball þurfa setja sér hærri viðmið til að eiga möguleika á að slá Helliseyingum við,“ sagði Óskar Pétur.

Á eftir var stiginn dans þar sem  hljómsveitin Gosarnir áttu sína stærstu stund á ferlinum. Með þeim var Einar Ágúst og hljómsveitina skipa, Sæþór Vídó, Biggi Nielsen, Gísli Stefáns, Dúni Geirs, Þórir Ólafs og Jarl Sigurgeirs.

Myndir Óskar Pétur.

 

Öflugir bræður, Bragi og Svavar Steingrímssynir.

 

Sindri Ólafs stýrði veislunni af snilld.

 

Það gerði Helgi Braga líka.

 

Þjónar gerast ekki myndarlegri.

 

Helliseyjarkórinn kallaði fram tár á hvörmum kvenna.

 

Stúlkurnar í Rán fengu mikð lof.

 

Helliseingar sinntu um þjónustu og sá séra Guðmundur Örn um að allt færi vel fram.

 

Salurinn í Höllinni var þéttsetinn.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.