Leggur til 15 daga lundaveiði
lundaveidi
Lundi veiddur í háf. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja leggur til að heimila lundaveiði í Vestmannaeyjum í fimmtán daga þetta sumarið. Veiðin verður leyfð dagana 27. júlí til 11. ágúst. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins frá fundi þess í vikunni.

Ráðið telur afar mikilvægt að stýring veiða á lunda í Vestmannaeyjum taki á öllum stundum fyrst og fremst mið af viðkomu stofnsins. Samkvæmt lögum er veiðitímabil lunda að öllu jöfnu frá 1. júlí – 15. ágúst. Reynsla síðastliðinna ára hefur sýnt að þeir fáu dagar sem lundaveiði er heimiluð eru nýttir til þess að viðhalda þeirri menningu sem fylgir veiðinni og úteyjarlífi almennt.

Lundaveiðimenn hafa sýnt ábyrgð í veiðum síðastliðin ár og veiðifélögin eru áfram hvött til að standa vörð um sitt nytjasvæði og upplýsi sína félagsmenn um að ganga fram af hófsemi við veiðarnar.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.