Leiðir til hraða orkuskiptum í flugi til skoðunar

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem er falið að skoða og leggja fram tillögur að því hvaða leiðir séu færar til að hraða orkuskiptum í flugi, með notkun endurnýjanlegs eldsneytis fyrir millilandaflug.

Starfshópurinn á í störfum sínum að taka mið af stefnu stjórnvalda, sem og aðgerðaáætlunum um orkuskipti og í loftslagsmálum.

Við vinnu sína á starfshópurinn m.a. að skoða fýsileika framleiðslu rafeldsneytis hér á landi, regluverk ESB um flugvélaeldsneyti (ReFuel og tengdri löggjöf um ETS kerfið. Þá á hópurinn að skoða endurnýjanlega orkugjafa (REDII) og áhrif þeirra á eftirspurn eftir endurnýjanlegu eldsneyti.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „ Ísland er í kjörstöðu til að vinna að framgangi orkuskipta í flugi eins og á öðrum sviðum. Mikilvægt er að vanda vel til verka og skoða þær leiðir í uppbyggingu rafeldsneytisframleiðslu og innleiðingu regluverks sem eru mest hagfelldar okkar hagsmunum. Við þekkjum markmiðin og þurfum aðkomu allra geira í orkuskiptunum framundan.“

Guðrún Hafsteinsdóttir alþingismaður er formaður hópsins.

 

Að auki skipa starfshópinn:

Alexandra Kjærnested Arnarsdóttir, EES-sérfræðingur, tilnefnd af utanríkisráðuneytinu

Erla Sigríður Gestsdóttir, teymisstjóri orkumála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Jón Ásgeir H. Þorvaldsson, verkefnisstjóri í orkuskiptum hjá Orkustofnun

Ingvi Már Pálsson, tilnefndur af menningar- og viðskiptaráðuneytinu

Orri Páll Jóhannsson, alþingismaður, tilnefndur af forsætisráðuneytinu

Valgerður B. Eggertsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af innviðaráðuneytinu

 

Starfshópurinn á að skila tillögu til ráðherra fyrir 1. júlí nk.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.