Fyrir mistök voru rangar upplýsingar skráðar um gildistíma og endurnýjunarákvæði samnings um rekstur Hraunbúða á 3127. fundi bæjarráðs Vestmannaeyja sem haldinn var í gær, mánudaginn 25. maí. Ábendingar þessa efnis bárust bæjarstjóra eftir fundinn og í samráði við fulltrúa bæjarráðs hefur verið ákveðið að funda að nýja á morgun, miðvikudaginn 27. maí, til þess að fara yfir málið að nýju og leiðrétta mistökin.
Frá árinu 2010 hefur Vestmannaeyjabær greitt rúmlega 500 m.kr. með rekstri Hraunbúða, sem lögum skv. ríkið ber ábyrgð á og ríkissjóður á að greiða fyrir. Kröfur ríkisins til þjónustunnar hafa aukist mikið undanfarin ár, en framlög til starfseminnar staðið í stað. Við þetta verður ekki unað og ósanngjarnt að skattgreiðendur í Vestmannaeyjum greiði fyrir þjónustu sem ríkið ber ábyrgð á.
Hið rétta er að síðasti samningur milli Sjúkratryggingar Íslands og Vestmannaeyjabæjar um rekstur Hraunbúða var undirritaður 19. desember 2019 og gildir hann frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2021. Samningnum má segja upp í heild sinni eða einstökum rýmum með 6 mánaða fyrirvara, miðað við mánaðarmót, þó ekki fyrr en 6 mánuðum eftir undirritun og skal uppsögn tilkynnt skriflega.
Bæjarráð mun svo taka fyrir málið að nýju á fundi sínum á morgun.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.