Leikmaður Keflavíkur fékk vænan skurð
Norski bakvörðurinn í liði Keflavíkur, Endre Ove Brenne var borinn af leikvelli í kvöld þegar ÍBV og Keflavík áttust við á Hásteinsvelli. Brenne og Víðir Þorvarðarson, leikmaður ÍBV skullu harkalega saman með höfuðin þannig að báðir lágu sárir á eftir. Báðir fengu þeir skurði en Víðir slapp betur frá árekstrinum. Norðmaðurinn var hins vegar fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl en var mættur aftur á Hásteinsvöll áður en leik lauk, með fjögur spor í enninu.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.