Leita allra leiða til að tryggja börnum leikskólavist eftir 12 mánaða aldur

Staðan á biðlista leikskóla var rædd á fundi fræðsluráðs í vikunni en 10 börn, fædd árið 2020, eru á biðlista auk 15 barna sem fædd eru árið 2021. Þá eru tvö eldri börn sem bíða eftir flutningi milli leikskóla. Eins og staðan er núna er fullt á Sóla og staðan um áramót óljós. Verið er að opna fimmtu deildina á Kirkjugerði og hafa öll börn 12 mánaða og eldri, sem hafa verið á bið eftir Kirkjugerði, fengið vistun þar. Áætlað er að taka næst inn á Kirkjugerði um áramót en að öðru leyti hefur ekki verið tekin ákvörðun um framhaldið.

Fram kemur í niðurstöðu um malið að ráðið leggur áherslu á að leitað verði allra leiða til að tryggja börnum leikskólavist sem fyrst eftir að þau ná 12 mánaða aldri. Fræðslufulltrúa er falið að fara yfir stöðuna með leikskólastjórum með þetta í huga og framkvæmdastjóra falið að gera ráð fyrir aukakostnaði sem þetta kann að leiða af sér í fjárhagsáætlun.

Vestmannaeyjabær sendi frá sér tilkynningu eftir fundinn þar sem fram kemur að ekki séu 25 börn á biðlista eftir leikskóla.  Í fundargerðum fræðsluráðs hafa öll skráð börn verið sögð á biðlista hvort sem þau hafa náð aldri til að hefja leikskólagöngu eða ekki, sem getur verið villandi. Eðlilegast er að telja þau börn á biðlista sem hafa náð aldri til að hefja leikskólagöngu en stendur ekki til boða leikskólapláss þar sem leikskólarnir eru fullsetnir.

Eins og staðan er í dag eru 10 börn, fædd 2020, á skrá eftir leikskólaplássi og þar af eru þrjú sem hafa náð 12 mánaða aldri. Þeim stendur til boða leikskólapláss en foreldrar/forráðamenn taka ákvörðun um hvort þeir þiggja pláss sem er í boði eða kjósa að bíða. Þá eru 15 börn, fædd 2021, á skrá.

Nýjustu fréttir

Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Truflanir hjá Microsoft hafa áhrif
Jónína Einarsdóttir 100 ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.