Leitar að örnefnavitringum

Undanfarin ár hefur farið fram mikil vinna hjá Landmælingum Íslands við söfnun og skráningu örnefna. Vitneskja um staðsetningu örnefna er víða að tapast og til að bjarga þessum menningarverðmætum frá glötun er brýn þörf á aðkomu eldri kynslóða við söfnun og skráningu þeirra. Mikilvægt er að vinna með staðkunnugum heimamönnum og hafa starfsmenn Landmælinga Íslands hitt fólk víðsvegar á landinu vegna þessarar vinnu.

Bjarney Guðbjörns­dótt­ir, starfsmaður hjá Land­mæl­ing­um Íslands sagði fyrr í þessum mánuði í viðtali við mbl.is, leit­ar þessa dag­ana að ör­nefna­vitr­ing­um. Fólki sem þekk­ir hverja þúfu og hríslu á af­mörkuðum landsvæðum hér­lend­is. Öllum þeim sem telja sig vel kunn­uga staðhátt­um og eru til í að aðstoða við að skrá þau menn­ing­ar­verðmæti sem ör­nefni eru inn á landa­kort.

Bjarney starfar meðal ann­ars við að hafa ut­an­um­hald með ör­nefna­grunni Land­mæl­inga.

Fram kemur í viðtalinu við Bjarney hversu ánægð hún sé með að fólk sé til­búið að gefa tíma sinn í að hjálpa til við þetta verk­efni, en frá því hún setti inn ákall um aðstoð á ör­nefna­hóp­inn á Face­book hef­ur hún fengið fjölda pósta frá fólki sem vill hjálpa til. Áhuga­sam­ir geta haft sam­band við Bjarn­eyju á net­fangið bjarney@lmi.is.

Nýjustu fréttir

ÍBV með öruggan sigur á HK
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Herjólfur til Þorlákshafnar síðdegis og í fyrramálið
Þéttsetið á tónleikum Júníusar Meyvant í Alþýðuhúsinu
Vilja gefa Blátind með meðgjöf
Eyjakonur sækja HK heim í dag
Rúmlega þriggja metra dýpi í Landeyjahöfn – siglingar háðar sjávarföllum
Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.