Lengi lifi lýðræði á Íslandi!
Framboðslisti Eyjalistans í bæjarstjórnarkosningunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Upp er runninn kjördagur en þessum degi fylgir ávallt mikil tilhlökkun. Stjórn Eyjalistans langar að koma fram þökkum til allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem stutt hafa við okkur í verki í baráttunni og í félagastarfinu í vetur. Án ykkar væri listinn ekki neitt! 

Við viljum nýta tækifærið og minna ykkur á, kæru kjósendur að nýta kosningaréttinn. Við viljum minna á framboðslista okkar en við erum stolt af þeirra verki í kosningabaráttunni. Þau hafa sýnt fram á mikilvægi framboðs eins og Eyjalistans. Þau hafa sýnt seiglu og vilja til að gera vel fyrir samfélagið okkar. Þau hafa sýnt vinsemd og kurteisi í öllum sínum skrifum og tali við íbúa. Markmið Eyjalistans er að vinna fyrir Vestmannaeyinga og gera góðan bæ enn betri! 

Kæru íbúar, nýtum kosningarétt okkar og veljum þann framboðslista sem passar best við okkar eigin persónulegu gildi! Lengi lifi lýðræði á Íslandi! 

 

Stjórn Eyjalistans 

Arna Huld Sigurðardóttir, formaður 

Anton Örn Björnsson, varaformaður 

Hildur Rún Róbertsdóttir, ritari 

Ingveldur Theodórsdóttir, gjaldkeri 

Sigurður Þór Símonarson, meðstjórnandi 

Nýjustu fréttir

Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.