Líkur á stöðvun strandveiða um miðjan júlí

Flest bend­ir til þess að strand­veiðar verði stöðvaðar um miðjan næsta mánuð vaxi afli strand­veiðibát­anna milli ára í júní eins og í maí. Þegar júní lýk­ur gætu bát­arn­ir verið bún­ir að landa 79% af þeim tíu þúsund tonn­um af þorski sem veiðunum er ráðstafað, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins.

Í maí­mánuði síðastliðnum tókst 666 strand­veiðibát­um að landa að meðaltali 656 kíló­um af þorski í róðri. Í heild náðu bát­arn­ir 3.501 tonni af þorski, sem er 35% af heim­ild­um í þorski ætlað strand­veiðum. Um er að ræða 6% meiri þorskafla í maí en á strand­veiðum í sama mánuði á síðasta ári.

Aldrei hafa strand­veiðar haft jafn stór­an hluta af heild­arkvóta í þorski og nú og er því talið að svig­rúm stjórn­valda til að auka við heim­ild­ir strand­veiðibáta í þorski sé mjög tak­markað.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.