Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja verður áfram í Hvíta húsinu

Á fundi bæjarráðs í síðustu viku voru lögð voru fram drög að leigusamningi húsfélagsins SHIVE, sem starfrækt er um fasteignina að Strandvegi 50, og Þekkingarseturs Vestmannaeyja, sem framleigir 2. og 3. hæð hússins til Lista- og menningarfélags Vestmannaeyja. Haustið 2019 var gerður leigusamningur við Lista- og menningarfélagið til eins árs. Samningur þessi gildir frá 1. október 2020 til 30. september 2022. Hækkanir á samningi eru í samræmi við aukna notkun húsnæðisins og þróun vísitölu neysluverðs. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkti leigusamninginn og fagnar því að blómleg starfsemi Lista- og menningarfélagsins í Hvíta húsinu við Strandveg 50 sé í húsinu. Lista- og menningarfélagið er gott dæmi um frumkvæði og sköpunarkraft ýmissa einstaklinga í Vestmannaeyjum og starfsemin setur skemmtilegan svip á bæjarbrag Vestmannaeyja.

Leigusamningur SHIVE og ÞSV um Strandveg 50 (Hvíta húsið).pdf

Nýjustu fréttir

Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.