Sunnudagurinn 17. febrúar er síðasta tækifæri til að eiga stund með myndlistakennara í Listasafni Árnesinga, sem staðið hefur fyrir „Stefnumóti við safneign fyrir gesti og gangandi í vetur. Á „Stefnumóti við safneign” gefst gestum á öllum aldri tækifæri til að reyna sig með litum og nokkra sunnudaga hafa myndlistarkennarar verið þeim til aðstoðar. Ekki er krafist neins undirbúnings og litir og pappír eru á staðnum. Gestir eru hvattir til að láta myndir á sýningunni kveikja hugmyndir að nýjum verkum um leið og handbragð og efnistök eldri meistara eru skoðuð. “
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.