Lítið hefur gerst frá því að fundað var síðast með forstjóra
Starfsstöð Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Vestmannaeyjum.

Þann 4. mars átti bæjarráð fund með Herdísi Gunnarsdóttur forstjóra HSU og tveimur fulltrúum stofnunarinnar. Meðal annars var rætt um hvernig 58 m.kr. fjárheimild til stofnunarinnar til eflingar geðheilbrigðismála verði ráðstafað. Kom fram að áhersla verði lögð á sálfræðiþjónustu fullorðinna einstkalinga. Samstarf við félagsþjónustu á landsbyggðinni verði aukið. Jafnframt var rætt um hvernig hægt er að efla ómskoðun og reglubundnar augnlækningar í Eyjum. Bæjarráð óskaði eftir upplýsingum um framtíðarsýn yfirstjórnar HSU á starfsemi stofnunarinnar í Vestmannaeyjum og stöðu mála er varða þyrlusjúkfraflug.

Bæjarráði finnst fátt um svör við þeim spurningum sem lagðar voru fram og lítið hafa gerst frá því að fundað var síðast með forstjóra stofnunarinnar. Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með að enn hafi ekki verið komið á fót sónarþjónustu né þjónustu augnlæknis við stofnunina þrátt fyrir fyrirheit forstjórans þar um. Bæjarráð ítrekar fyrri bókanir um nauðsyn þess að hlutverk HSU í Vestmannaeyjum verði skilgreint til framtíðar og þjónusta stofnunarinnar og þá sérstaklega bráðaþjónusta við íbúa samfélagins verði efld til muna.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.