Lítið mældist af loðnu í rannsóknarleiðöngrum í janúar
Fyrsta yfirferð loðnuleitar 2020

Bráðabirgðamat liggur nú fyrir frá mælingum á stærð loðnustofnsins í janúar. Stærð hrygningarstofnsins samkvæmt þessum mælingum var um 64 þúsund tonn. Matið byggir á mælingum þriggja skipa, RS Árna Friðrikssonar, ásamt loðnuskipunum Hákoni EA-148 og Polar Amaroq. Er það langt undir þeim mörkum í gildandi aflareglu sem þarf að ná svo Hafrannsóknastofnun geti ráðlagt veiðar. Meðfylgjandi mynd sýnir yfirferð skipanna og dreifingu loðnu yfir tímabilið 13. – 25. janúar.

Þrátt fyrir erfiðar veðuraðstæður náðist með samstilltu átaki þriggja mæliskipa og tveggja leitarskipa, heildaryfirferð frá Hvalbakshalla fyrir suðaustan land og þaðan norður um og suður fyrir Víkurál út af Vestfjörðum. Hafís hindraði mjög yfirferð í Grænlandssundi.

Laugardaginn 1. febrúar var byrjað á að ná mælingu á stofninum öðru sinni. Polar Amaroq byrjaði þá yfirferð suðaustur af landinu og mun Aðalsteinn Jónsson SU-011 koma inn í þær mælingar fyrir austan þriðjudaginn 4. febrúar.

RS Árni Friðriksson mun halda til mælinga 3. febrúar vestur fyrir land og mæla til móts við hin skipin. Gert er ráð fyrir að þessar mælingar geti staðið yfir fram í a.m.k. miðjan mánuðinn.

www.hafogvatn.is

Nýjustu fréttir

Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Í gær höfðu 96 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum
MATEY Seafood Festival snýr aftur
1.maí, baráttudagur verkafólks á Íslandi
ÍBV tekur á móti Víkingi R. í dag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.