Litla Mónakó - Framtíðin er í Eyjum
Jóhann Halldórsson er borinn og barnfæddur Vestmannaeyingur.

LAXEY Jóladagatalsmoli – Fjórar vikur til stefnu

Eyjamaðurinn Jóhann Halldórsson, fjármálasérfræðingur og fjárfestir hefur undanfarna mánuði skrifað áhugaverða pistla á Fésbókarsíðu sinni um þróunina í Vestmannaeyjum sem hann kallar Litla Mónakó. Halldór hefur góðfúslega gefið Eyjafréttum leyfi til að birta pistlana og hér er sá nýjasti:

Stærsta jólagjöf Eyjamanna frá upphafi verður formlega opnuð í næsta mánuði þegar að landeldi í Viðlagafjöru fer formlega í gang. Opnum við því jóladagatalsglugga fjögur til að skyggnast inní framtíðina og áttum okkur á hvað koma skal! Til að sjá hversu risavaxið verkefninu hjá Laxey er raunverulega er ágætt að setja hlutina i ákveðið samhengi.

Laxey í tölum

Er 60 milljarða framkvæmd. Kostnaður við Landeyjahöfn var 3,3 milljarðar árið 2010 uppreiknað á verðlag ársins eru það um 5.85 milljarðar. Útflutningstekjur 30 milljarðar. Heildartekjur Vestmannaeyjabæjar voru árið 2022 8.8 milljarðar. þeir hafa safnað 13 milljörðum í hlutafé. Til  að átta sig betur á þeirri tölu, þyrfti hver og einn Vestmannaeyjngur að leggja í púkkið litlar 2.700.000 kr.! Yfir 100 störf skapast hjá fyrirtækinu auk fjölda afleiddra starfa.

Áhugavert verður svo að velta fyrir sér afleiddri starfsemi sem þessi framkvæmd getur skilað. Getur orðið umtalsverð eins og reynslan hefur sýnt sig erlendis. Meira um þær pælingar síðar.

Í nýútkomnu blaði Eyjafrétta er fjallað ítarlega um Laxey. Það verður að hrósa þeim sem koma að útgáfunni sem hefur tekið miklum breytingum nýlega og er þessi samantekt gott dæmi um það, Ómar Garðarsson, Tryggvi Már Sæmundsson, Annika Vignisdóttir og Trausti Hjaltasson. Hvet ég alla til að sækja sér eintak og smella sér í áskrift, https://eyjafrettir.is/askrift-3/

Þá verður einnig að hrósa almennri upplýsingagjöf hjá Laxey á framvindu verkefnisins sem er alveg til fyrirmyndar og fer þar fremstur í flokki Óskar Jósúason

Óútfylltur tékki í gleðibankanum

Arion banki og Laxey undirrituðu svo samkomulag um fjármögnun í októbermánuði. https://www.laxey.is/arion-banki-og-laxey-undirrita…/

Fyrir þá sem það þekkja er þetta gríðarlega stórt og mikilvægt skref fyrir verðandi verðmætasköpun hjá Laxey og sýnir aukna trú á verkefninu. Fyrir þá sem vilja kynna sér verkefnið frekar má benda á áhugavert viðtal við frumkvöðlana á bak við Laxey, Hallgrímur Steinsson og Daði Pálsson sem tekið var upp í sumar á hlaðvarpsþættinum Hringferðin  hjá Stefán Einar Stefánsson og Gísli Freyr Valdórsson https://open.spotify.com/episode/2oMox1FR8xFt1EczkuUkNJ… Jólin koma snemma í ár – Laxey – Money.

Eyjamaður

Krakkar á blaðamennskunámskeiði.

Jóhann Halldórsson er borinn og barnfæddur Vestmannaeyingur. Hefur starfað sem fjármálasérfræðingur og fjárfestir sl 20 ár. Segist næstum vera blaðamaður eftir starfskynningu hjá Eyjafréttum, tólf ára og bar út Fréttir fyrstu árin sem blaðið byrjaði í áskrift.

Eiginkonan er Guðný Ólafsdóttir og eiga þau tvö börn, Bríeti Evu og Bóas Óla. Foreldrar hans eru Halldór heitinn Guðbjörnsson. Hann var skipstjóri á Frá VE 78, framkvæmdastjóri Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum, Félagi í Kiwanisklúbbnum Helgafelli og Frímúrarareglunni á Íslandi. Móðir hans er Helga Símonardóttir.

Tengdaforeldrar eru Valgeir Ólafur Kolbeinsson og Sigfríður Konráðsdóttir og afi og amma, Símon Kristjánsson og Anna Tómasdóttir Túngötu 23.

Skírteinið góða.

 

Nýjustu fréttir

Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.