Litla Mónakó - Klárir !
Kynningarfundurinn var vel sóttur.

„Ekki amalegt að fara með þessar fréttir inní helgina og smá svona snemmbúinn jólapakki,“ segir Jóhann Halldórsson sem birtir reglulega pistla á Eyjafréttum undir heitinu, Litla Mónakó og vísar þar til mikils uppgangs í Vestmannaeyjum. Fréttin sem hann vísar til er kynningafundur um baðlón og hótel á Nýjahrauninu á eyjafrettir.is í síðustu viku.

„Þetta er sennilega mun stærra en margir ætla þar sem að það sem hefur einmitt sárlega vantað inní mengið fyrir ferðaþjónustuna í Eyjum er einmitt alþjóðleg hótelkeðja þar sem að með henni tengjast Eyjarnar inn í risastórt leiðakerfi! Aðilarnir sem standa svo á bak við verkefnið eru þekktir fyrir metnað og að gera hlutina vel. Það mun svo ekki standa á þeim að byrja.

Þeir eru klárir

Það er því til mikils að vinna fyrir Eyjarnar að uppbygging hefjist sem fyrst þar sem bara bæjarsjóður verður sennilega af milljónum í tekjur fyrir hvern tapaðan mánuð, fyrir utan allt annað. Til að átta sig svo betur á umfanginu á svona verkefni og setja það í samhengi hversu mikil lyftistöng þetta er fyrir ferðaþjónustuna í eyjum og reyndar alla á Eyjunni er gaman að rifja upp framkvæmdir Bláa lónsins um árið,“ segir Jóhann og vísar til þess þegar byggt var hótel við Bláa lónið 2016.

Play Video

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.