https://open.spotify.com/album/4v6oFMKp7c3ydce1nbxaih?si=svGDyZIQQWyvdeh4nEdaAw
Árið 1998 kom út hljómplata á vegum Landakirkju með lögum Helgu Jónsdóttur í flutningi Litlu lærisveina Landakirkju. Á plötunni er að finna fjölda laga sem heyrast hafa í sunnudagaskólum landsins í gegnum tíðina og má þar helst nefna Regnbogann sem flestir þekkja.
Nú hefur þessari ágætu plötu verið komið á stafrænt form og er hún aðgengileg á helstu streymisveitum, svo sem Spotify, Apple Music, Tidal, o.fl.
“Nú er um að gera að setja í gang fyrir yngstu kynslóðina og þá sem vilja rifja upp þessa fínu plötu sem geymir perlur sem sóma sér vel í katalók Eyjalaga og sunnudagaskólalaga,” segir í tilkynningu á vef Landakirkju.
Hér má finna plötuna á Spotify
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.