Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Livey tekur við streymi allra leikja í Olísdeild karla og kvenna. Mynd: Sigfús Gunnar Guðmundsson

Handknattleikssamband Íslands, Handboltapassinn og streymisveitan Livey hafa gengið frá samstarfi um útsendingar frá Olísdeildinni. Livey mun streyma öllum leikjum deildarinnar, bæði sjónvarpsleikjum og útsendingum úr sjálfvirkum myndavélum.

Í tilkynningu frá HSÍ segir að samstarfinu fylgi umtalsverðar breytingar á útsendingunum. Endursýningar verði í boði í öllum leikjum og gæði útsendinga úr sjálfvirkum myndavélum verði aukin. Markmiðið sé að bæta upplifun áhorfenda af hverjum einasta leik, óháð því hvar hann fer fram.

Einn leikur umferðarinnar í opinni dagskrá

Breytingar verða einnig á fyrirkomulagi opinna útsendinga. Í stað tveggja leikja á viku verður einn leikur hverrar umferðar sýndur í opinni dagskrá á Símanum og Livey.

Leikur umferðarinnar mun flakka á milli Olísdeildar karla og kvenna þannig að báðar deildir fái sitt pláss í opinni dagskrá yfir tímabilið.

Handboltahöllin verður áfram á dagskrá að loknum leik umferðarinnar og sýnd í beinni útsendingu á Símanum, Handboltapassanum og Livey.

Handboltapassinn áfram í sömu mynd

Handboltapassinn verður áfram í sömu mynd og áður og áskrifendur þurfa ekkert að aðhafast. Hann verður jafnframt aðgengilegur í íþróttapakka Livey, sem opnar handboltann fyrir nýjum hópi áhorfenda.

Samstarfið hefst föstudaginn 28. ágúst þegar meistarakeppni HSÍ fer fram á Hlíðarenda. Þar mætast Valur og Haukar í tveimur leikjum:

  • Kl. 18.00: Valur–Haukar, meistarakeppni kvenna.
  • Kl. 20.15: Valur–Haukar, meistarakeppni karla.

Báðir leikirnir verða í opinni dagskrá á Handboltapassanum og Livey.

„Við höfum lagt mikla áherslu á að allir leikir í Olísdeildinni séu aðgengilegir áhorfendum og með þessu samstarfi tökum við næsta skref í gæðum. Endursýningar í öllum leikjum og aukin gæði útsendinga úr sjálfvirkum myndavélum eru breyting sem áhorfendur finna strax fyrir. Um leið tryggjum við að leikur umferðarinnar sé áfram í opinni dagskrá og að bæði karla- og kvennadeildin fái þar sitt pláss,“ segir Ólafur Víðir Ólafsson, móta- og sjónvarpsstjóri HSÍ.

Guðjón Sveinsson, framkvæmdastjóri Livey, segir það heiður fyrir fyrirtækið að fá að flytja íslenskan handbolta til áhorfenda.

„Við ætlum að nýta tæknina til að gera hverja útsendingu betri, með endursýningum og auknum gæðum. Með því að bjóða Handboltapassann í íþróttapakka Livey náum við jafnframt til enn fleiri áhorfenda,“ segir Guðjón.

Nýjustu fréttir

Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.