Loðnumælingu lokið
Leiðarlínur skipanna fimm sem tóku þátt í loðnumælingum í síðustu viku ásamt legu hafís.

Lokið er leiðangri fimm skipa með það að markmiði að mæla stærð hrygningarstofns loðnu. Skipin hafa haldið til heimahafna.

Loðna fannst með landgrunnskantinum norðan Íslands allt austur að Langanesdýpi. Ekkert var að sjá á grunnum né með kantinum austan lands. Að megninu til fékkst hrygningarloðna í togsýnum. Niðurstöður mælinganna munu liggja fyrir í vikunni.

Hafís vestan við land hafði veruleg áhrif á mælinguna (mynd). Rannsóknaskipið Árni Friðriksson var vestast og kom ísinn alveg í veg fyrir mælingar við og utan við landgrunnsbrúnina á Vestfjarðamiðum. Þar varð vart við loðnu í desember. Eins lenti Bjarni Sæmundsson í ís norður af Vestfjörðum. Að öðru leyti voru aðstæður til mælinga með ágætum.

Fyrirhugað er að endurtaka mælingar og þá helst þegar hagstæðar aðstæður verða m.t.t. hafíss og veðurs. Rannsóknaskipin verða tilbúin í verkefnið en ekki hefur verið ákveðið hvernig þátttöku annara skipa verður háttað. Miðað við veðurspár og núverandi útbreiðslu hafíss verða góðar aðstæður til mælinga í fyrsta lagi seinni part viku.

Leiðarlínur skipanna fimm sem tóku þátt í loðnumælingum í vikunni ásamt legu hafís (sjá https://skip.hafro.is/)

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.