Lögreglan byrjuð að sekta þá sem aka um á nagladekkjum
Ein kæra vegna eignaspjalla liggur fyrir eftir vikuna hjá lögreglu en um var að ræða rúðubrot í bifreið sem stóð fyrir utan Strembugötu 15 að kvöldi 6. maí sl. Ekki er vitað hver þarna var að verki en þeir sem telja sig hafa upplýsingar um það eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis í vikunni sem leið.
�?á liggja fyrir 5 kærur vegna brota á umferðarlögum þar sem í flestum tilvikum var um að ræða ólöglega lagningu ökutækis.
Eins og eigendur ökutækja á að vera kunnugt um þá er tími nagladekkjanna liðinn á þessu vori og mun lögreglan byrja að sekta þá sem aka um á nagladekkjum frá og með 15. maí. Rétt er að minna á að sekt fyrir hvern nelgdan hjólbarða er kr. 20.000,-.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.