Lögreglan – Njótið kvöldsins heima fyrir

„Við viljum ítreka fyrir ökumönnum að vera ekki að fara af stað á illa útbúnum bifreiðum. Í dag voru helstu aðalgötur bæjarins ruddar. Nú er skafrenningur og skaflar byrjaðir að myndast sem erfitt er að komast í gegn um. Því eru flestar götur bæjarins illfærar fyrir fólksbifreiðar og lága jepplinga,“ segir í færslu sem lögreglan í Vestmannaeyjum setti inn á Fésbókarsíðu sína fyrir tveimur klukkustundum. Bendir hún fólki á að njóta kvöldsins heima fyrir og hrofa á  kvikmyndina Þorpið í bakgarðinum á RÚV.

En það er víðar ófærð en í Eyjum og því var tekin sú ákvörðun í dag að flýta brottför Herjólfs vegna  færðar á vegum og aksturskilyrða. „Biðjum við farþega okkar að fara varlega og gefa sér góðan tíma til aksturs,“ segir í tilkynningu frá Herjólfi.

Myndina tók Addi í London í dag og segir hún allt sem segja þarf.

Nýjustu fréttir

Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.