Lögreglustöðin í Vestmannaeyjum lokuð öðrum en starfsmönnum

Vegna COVID-19 faraldursins mun lögreglustöðin í Vestmannaeyjum verða lokuð öðrum en starfsmönnum lögreglu um takmarkaðan tíma. Þetta kemur fram á facebook síðu lögreglunnar en hún sinnir að sjálfsögðu öllum verkefnum sem koma upp en með þessu er leitast við að koma í veg fyrir að smit berist inn á lögreglustöð.

Það er því rétt að benda fólki á eftirfarandi ef þörf er á aðstoð lögreglu.

Ef um neyðarástand er að ræða skal hringja í 112.

Þegar ekki er um neyðarástand að ræða en þörf er á aðstoð lögreglu til að leggja fram kæru eða tilkynna um afbrot er hægt að hafa samband við lögreglu með eftirfarandi hætti:

Hringja í síma 444 2090
Í tölvupóstfangið: vestmannaeyjar@logreglan.is
Í gegnum facebooksíðu lögreglunnar í Vestmannaeyjum.
Í gegnum heimasíðu lögreglunnar logreglan.is en þar er hægt að tilkynna um minniháttar afbrot t.d: eignaspjöll, árekstur og afstungu, minniháttar þjófnaði til dæmis á farsímum og reiðhjólum, týnd og stolin verðmæti ofl.

Öllum erindum verður svarað eins skjótt og kostur er.

Ef nauðsyn er að taka á móti fólki á lögreglustöð þá leiðbeinir lögregla með hvernig því verði háttað.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.