Lokahátíð Raddarinnar haldin í Eyjum
Sigurvegarar Upplestrarkeppni 2
Verðlaunahafar Raddarinnar árið 2025. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Síðastliðinn þriðjudag var haldin lokahátíð Raddarinnar. Keppnin sem haldin er árlega er upplestrarkeppni 7. bekkjar. Í ár var keppnin haldin í Vestmannaeyjum og komu nemendur úr skólum Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu og Eyjum.

Fram kemur í tilkynningu á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar að fyrir hönd GRV hafi keppt þau Bríet Ósk Magnúsdóttir, Hrafnkell Darri Steinsson og Rafael Bóas Davíðsson. Allir keppendurnir stóðu sig afskaplega vel og áttu dómarar ekki auðvelt verk fyrir höndum að velja sigurvegara.

Boðið var upp á tónlistaratriði í hléinu en þá spilaði Bjartey Ósk Smáradóttir nemandi við Tónlistarskóla Vestmannaeyja á þverflautu við undirspil Kitty Kovács. Einnig fengu gestir og þátttakendur að hlýða á ljóðalestur þar sem Inda Marý Kristjánsdóttir nemandi við GRV flutti frumsamin ljóð. Allir keppendurnir fengu viðurkenningu og rós fyrir þátttöku en Landsbankinn í Vestmannaeyjum gaf verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.

Verðlaunahafar Raddarinnar árið 2025 eru:

  1. sæti – Tinna Lind Brynjólfsdóttir, Laugalandsskóli
  2. sæti – Hjalti Kiljan Friðriksson, Hvolsskóli
  3. sæti – Hrafnkell Darri Steinsson, Grunnskóli Vestmannaeyja

Til hamingju kæru nemendur sem tóku þátt í ykkar skólum, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Vörubakarí opnaði í morgun
Herjólfur III í haffærisskoðun um mánaðamótin – dýpkun hefst í byrjun ágúst
Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.