Lúðrasveitin með tónleika kl.14:00 laugardag
Lúðrasveit Vestmannaeyja heldur sína árlegu tónleika laugardaginn 11.nóvember kl.14.00 í Hvítasunnukirkjunni. �?essir tónleikar eru yfirleitt hápunktur starfsársins og bætast þá í hópinn gamlir félagar af meginlandinu og lagður er mikill metnaður í fluting og efnisskrá.
Að þessu sinni mætti segja að tónleikarnir verði �??léttari�?� en oft áður. Má þar nefna að flutt verða verk frá Elvis, Bítlunum, Led Zeppelin, Coldplay, Muse og fleiri góðum. Einnig verður hefðbundnari lúðrasveitartónlist í einhverjum mæli á dagskránni og að sjálfsögðu verður líka boðið upp á tónlist Oddgeirs Kristjánssonar, en hann stofnaði Lúðrasveit Vestmannaeyja 22.mars 1939 og stjórnaði henni til dánadags. Stjórnandi sveitarinnar í dag er Jarl Sigurgeirsson.
Starf Lúðrasveitarinnar hefur gegnið í gegnum hæðir og lægðir eins og gengur og gerist, en stuðningur og velvild bæjarbúa hefur í gegn um tíðina verið okkur hvatning til að halda starfinu áfram. Svona félagsskapur er náttúrulega ekkert annað en félagarnir sjálfir sem að starfinu koma. �?essir árlegu tónleikar eru kenndir við styrktarfélaga sveitarinnar, en það er hópur fólks sem stendur að baki Lúðrasveitinni sinni með árlegum fjárstyrk. �?að er okkur mikils virði fjárhagslega, en ekki síður félagslega að finna þann þá velvild sem í samfélagi okkar býr í garð sveitarinnar.
Oftast hafa þessir tónleikar verið um safnahelgi en viðburðir safnahelgar voru orðinr svo margir og árekstar við aðra dagskrárliði þannig að ákveðið var að færa tónleikana. Hefur það verið unnið í góðu samstafi við Vestmannaeyjabæ sem verður með kynningu í Eldheimum kl.16.00, Leikfélagið, sem verður með sína frumsýningu kl.17.00 og aðstandendur Samferða sem halda sína styrktartónleika í Höllinni á laugardagskvöldið. �?að verður því nóg um að vera og er varla hægt að segja að menningarþurrð sé að angra okkur hér í Eyjum.
Lúðrasveit Vestmannaeyja lofar því að engin verði svikinn af því að mæta á hressilega lúðrasveitartónleika áður en haldið verður á aðra viðburði laugardagsins.

Nýjustu fréttir

Styrkir afhentir við hátíðlega athöfn í Oddfellow
Humar í fyrsta sinn á Matey
Vel veiðist hjá Eyjunum
​​Kjörsókn dróst saman í ​Eyjum
Samgönguvandinn bitnar á Eyjagöngum
Kristín Klara í lokahóp u-19
„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
Tæplega sjö af hverjum tíu sögðu já
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.