Lundúnir í fyrradag og Lúxemborg í dag
Unnar Gísli fyrir miðju. Með honum eru Rubin Pollock, gítarleikari og trommuleikarinn Kristofer Rodriguez Svönuson.

Eyjamaðurinn Unnar Gísli Sigurmundsson, sem hefur verið að gera það gott undir listamannsnafninu Júníus Meyvant, hóf tónleikaferðalag sitt um Evrópu með tónleikum í Lundúnum í fyrrakvöld. „Þetta var bara gaman, mjög gaman,“ segir Unnar um fyrstu tónleikana, sem voru vel sóttir. „Ég ætlaði að vera kominn með plötu, en það klúðraðist aðeins í smá studíórugli. Ég klára hana í byrjun næsta árs og fer bara aftur út þegar ég er tilbúinn með plötu. En stemningin er frábær.“

Unnar er nýlega kominn heim frá Bandaríkjunum þar sem hann túraði með hljómsveitinni Kaleo. Með honum á ferðinni nú eru þeir Rubin Pollock, gítarleikari Kaleo, og trommuleikarinn Kristofer Rodriguez Svönuson. Ferðalagið heldur nú áfram til Lúxemborgar og Amsterdam, en samtals eiga þeir eftir að spila í sautján borgum víða um Evrópu. „Þetta er bara fyrsta giggið,“ segir Unnar, „og sums staðar er uppselt, sums staðar bara ágætt. Þetta er túrlífið.“

Salka Sól

Nýjustu fréttir

Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.