M.is er opið öllum! ..eða opinn öllum?
MSkissur0209 2
Ljósmynd/Menningar- og viðskiptaráðuneytið.

Menningar- og viðskiptaráðuneytið og Árnastofnun kynna nýjasta skriffærið í pennaveskjum landsmanna: íslenskuvefinn m.is sem er nú opinn öllum eftir fyrsta fasa þróunar. M.is er sérsniðinn að þörfum yngra fólks og þeirra sem eru að læra íslensku sem annað tungumál. Markmið hans er að gera orðabækur og upplýsingar um íslenska tungu aðgengilegri og þá sérstaklega með tilliti til ungmenna. Þetta segir í tilkynningu ráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins.

Hvað gerir m.is?

Á m.is er að finna íslenska orðabók sem sýnir merkingu orða, beygingu þeirra og helstu orðasambönd. Þar er einnig að finna íslensk-enska orðabók og íslensk-pólska orðabók auk þess sem hægt er að þýða orð eða setningar á ensku. Einfalt hugtakasafn skýrir svo helstu hugtök. Boðið er upp á að slá inn texta eða tala inn orð og setningar auk þess sem hægt að hlusta á framburð orða. M.is er þróaður á mörkum hefðbundinna orðabóka og máltæknilausna og nýtir til þess nýjustu tækni. Vefurinn mun því þróast áfram samhliða notkun. Meðal atriða sem kemur til greina að bæta við á næstunni eru yfirlestrartól og samheitaorðabók.

Vinsælar villur

Markmiðið með m-inu er að veita aðgang að gæðaefni um íslenskt mál og að m-ið verði fyrsti viðkomustaður ungs fólks og þeirra sem eru að læra íslensku sem annað tungumál. Þannig einfaldar m.is málið – og er síða sem notendur geta treyst þar sem almennar leitarvélar skila ekki endilega réttri stafsetningu efst í niðurstöðum.
Við vinnslu á kynningarefni fyrir m.is var leitað til hóps framhaldsskólanema úr fimm framhaldsskólum.

„Ungmennin okkar eru snillingar. Þau deildu með okkur algengum villum sem þau sjálf eru að glíma við eða rekast reglulega á og ég er nokkuð viss um að við flest séum með dæmi sem við ruglumst ítrekað á,“ segir menningar- og viðskiptaráðherra og nefnir dæmi frá hópnum. „Hangir jakkinn eða hengur? Af hverju er hringur kringlóttur en ekki hringlóttur? Það sem er svo frábært við þessa umræðu er að ungu fólki er ekki sama hvernig það skrifar. Það er þessi metnaður og umhyggja fyrir íslenskunni sem sannfærir mig um að íslenskan muni lifi af ef við höldum áfram að hlúa vel að henni.“

Vilja dönsku

Ráðherra og fulltrúi Árnastofnunnar heimsóttu í haust Kvennaskólann og kynntu vefinn fyrir nemendum og starfsfólki. „Það var frábært að fá beint í æð frá nemendum hvað þau þurfa og vilja. Það kom mér til dæmis á óvart að það fyrsta sem þau nefndu að þeim fyndist vanta væri þýðing úr dönsku,“ segir ráðherra en viðbætur við vefinn eru í þróun og hvetur ráðherra notendur til að senda ábendingar á m@arnastofnun.is til þess að vefurinn þroskist og þróist sem best.

Nýjustu fréttir

Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.