Maður þarf ekkert endilega að keppa þótt maður sé í crossfit
Í tvö ár hefur Hressó starfrækt tvær líkamsræktarstöðvar í Vestmannaeyjum, annars vegar Hressó við Strandveg 65 og hins vegar Litla Hressó í Íþróttamiðstöðinni. Fyrir skemmstu var síðarnefnda stöðin stækkuð umtalsvert og er óhætt að segja að með þessu aukarými hafi verið unnin mikil bragarbót á aðstöðunni. Blaðamaður ræddi við Jóhönnu Jóhannsdóttur, þjálfara og einn eiganda Hressó, um stækkunina og hina sívinsælu íþrótt Crossfit sem hefur heldur betur slegið í gegn á Íslandi síðustu árin.

Hvernig kom það til að stækka Litla Hressó? �??�?essi eining var nánast ónýtt þarna upp frá og það hafði komið til tals að fá að bæta henni við ef þess væri nokkur kostur. �?egar menn opnuðu svo á að það væri lítið mál að græja þetta þá var ákveðið að taka því fegins hendi og við sjáum ekki eftir því,�?? segir Jóhanna.

Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að stækkunin eigi eftir að nýtast? �??Stækkunin gefur salnum alveg nýja vídd og ákveðinn hluti lyftinganna fer að mestu fram á nýja svæðinu og því skapast meira rými á �??gamla�?? svæðinu fyrir fjölbreyttari æfingar og teygjur án þess að þú sért sífellt að anda ofan í hálsmálið á næsta manni. �?etta virðist hafa verið mjög gott skref og við verðum vör við mikla ánægju hjá þeim sem hafa talað við okkur um þetta �?? hið besta mál.�??
Hægt er að nálgast viðtalið í heild sinni í Heilsublaði Eyjafrétta

Nýjustu fréttir

Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.