Maginn fullur af burstaormum
Kristgeir Kap 2025 TMS IMG 7560
Kristgeir Arnar Ólafsson í brúnni á Kap. Ljósmyndir/vsv.is

Áhöfnin á Kap VE kvartar ekki undan aflabrögðunum þessa dagana. Þegar fréttaritari VSV náði tali af Kristgeiri Arnari Ólafssyni skipstjóra síðdegis í gær voru þeir að leggja í hann til Eyja. „Það er búin að vera fínasta veiði. Fínasta blanda. Einhver 20-25 tonn á dag,” segir hann er hann var spurður um aflabrögðin upp á síðkastið.

Aðspurður um hvernig vertíðin sé samanborið við sama tíma og í fyrra segir Kristgeir að þetta sé miklu seinna á ferðinni núna í ár. „Það vantar alveg loðnuna.”

Um 27 tonn í túr

Hvað hafið þið verið að fiska mikið í róðri?​ Svona 27 tonn.​ Þar af einhver sjö til átta tonn af ufsa.

​Þú talar um að það vanti loðnuna. Hafið þið skoðað hvað fiskurinn er að éta?​ Já, hann er að éta burstaorma. Maginn fullur af því. ​Það er eitthvað sem við höfum ekki séð áður.

​Spurður um hvar ​þeir hafi aðallega verið að veiðum undanfarið​ segir hann að þeir hafi verið á Hausnum á Selvogsbanka.

Veðrið truflaði

​„Við byrjuðum í Breiðafirði​. Vorum þar ​nánast út feb​rúar. ​Í endan​n feb​rúar tókum einn túr við Eyjar. ​Það var engin veiði austan við Eyjar.​ Við erum ​núna að elta blettina fyrir ​vestan.​ T.d. ​á ​Klöppinni.

En talið barst aftur að loðnunni. Hann segir þau tíðindi að hann hafi verið að frétta af loðnu út af ​Víkinni í dag. ​„Munurinn er að togararnir hafa ekkert verið að fá. Það er aðeins að lagast. Þeir eru ​núna að fá um tonn á tímann.​”

​S​purður um hvort veðrið​ hafi sett strik í veiðarnar​ hjá þeim segir hann að í kringum mánaðarmót​ hafi þeir v​erið frá veiðum í sex daga​ vegna veðurs.

Fróðleikur um Burstaorma

Burstaormar eða Burstormar eru hryggleysingjar af fylkingu liðorma. Þeir eru eitt algengasta dýrið á sjávarbotni hér við land og getur verið mörg þúsund burstaormar á hvern fermetra. Af þeim eru til meira en 6 þúsund tegundir sem flestar eru minni en 10 millimetrar á lengd en þó eru til stærri og allt upp í risaskera sem getur orðið nokkrir tugir sentimetra á lengd.  Heimild: Wikipedia.

Frétt af vef Vinnslustöðvarinnar. Þar má sjá fleiri myndir frá komu skipsins í gærkvöldi.

Burstaormar

Nýjustu fréttir

Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.