Málþing, súpa og spjall
Lundar skipa stóran sess í náttúru og menningu Vestmannaeyja. Staða og nýting sjófugla verður til umræðu á málþingi mánudaginn 12. október.

Náttúrustofa Suðurlands hefur frá árinu 1996 gegnt mikilvægu hlutverki í rannsóknum á náttúru Suðurlands, ekki síst í Vestmannaeyjum. Stofan er rekin af Vestmannaeyjabæ með stuðningi ríkisins og hefur aðsetur í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.

Meginhlutverk Náttúrustofunnar er að stunda vísindalegar rannsóknir, safna upplýsingum um náttúrufar og miðla þekkingu sem nýtist við náttúruvernd, nýtingu náttúruauðlinda og ákvarðanatöku. Rannsóknir á sjófuglum hafa verið veigamikill þáttur í starfseminni, sérstaklega rannsóknir á lunda, stofnstærð hans og þeim þáttum sem hafa áhrif á viðkomu og afkomu stofnsins. Sá þáttur starfseminnar er líklega hvað mest áberandi fyrir okkur hér í Eyjum.

Fyrir samfélag eins og Vestmannaeyjar, þar sem sjófuglar eru órjúfanlegur hluti af náttúru, sögu og menningu, er mikilvægt að ákvarðanir um vernd og nýtingu byggist á traustum vísindalegum upplýsingum.

Málþing um stöðu og nýtingu sjófugla

Mánudaginn 12. október næstkomandi verður haldið málþing um stöðu og nýtingu sjófugla á Íslandi. Náttúrustofa Suðurlands kemur að undirbúningi málþingsins ásamt Náttúruverndarstofnun, Hafrannsóknastofnun, Náttúrufræðistofnun og fleiri aðilum.

Málþingið fer fram í húsnæði Hafrannsóknastofnunar kl. 9:00–16:30. Stjórn Náttúrustofu Suðurlands ætlar að sýna streymi frá málþinginu í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.

Stjórn Náttúrustofu Suðurlands hvetur alla sem láta sig málefni sjófugla varða til að fylgjast með málþinginu og taka þátt í þeirri mikilvægu umræðu sem þar fer fram. Náttúrustofan býður upp á súpu í hádeginu og því er tilvalið að setjast niður og ræða saman.

Upplýsingar um málþingið og dagskrá þess má nálgast hér.

 

Stjórn Náttúrustofu Suðurlands

Nýjustu fréttir

Málþing, súpa og spjall
Eyjamenn sækja ÍR heim í bikarnum í kvöld
Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.