Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja var haldinn sl. þriðjudag. Mannabreytingar urðu á stjórn samtakanna og ákváðu þrír reynslumiklir stjórnarmenn að draga sig í hlé frá stjórnarsetu. Það eru þau Berglind Sigmarsdóttir, Íris Sif Hermannsdóttir og Páll Scheving Ingvarsson. Auk þeirra hætti Jóhann Ólafur Guðmundsson í stjórn eftir árs stjórnarsetu.
Í stað þeirra komu í stjórnina þau Ólafur Jóhann Borgþórsson, María Ýr Kristjánsdóttir, Jón Þór Guðjónsson og Ingibjörg Bryngeirsdóttir. Þá voru þau Eyþór Þórðarson, Hallgrímur Rögnvaldsson og Hafdís Ósk Ólafsdóttir endurkjörin í stjórn. Stjórnin hefur þegar skipt með sér verkum og er Jón Þór formaður, María Ýr varaformaður, Eyþór er gjaldkeri, Hafdís ritari og Hallgrímur, Ingibjörg og Ólafur Jóhann meðstjórnendur.
Í tilkynningu á samfélagsmiðli samtakana frá Berglindi, Írisi Sif og Páli vilja þau á þessum tímamótum – eftir átta ára stjórnarsetu – koma á framfæri þökkum til þeirra 34 fyrirtækja sem tilheyra samtökunum, bæjaryfirvalda og ekki síst til fulltrúa sem setið hafa í stjórn með þeim á þessu tímabili og unnið árangursríkt starf við markaðssetningu og uppbyggingu ferðaþjónustunnar í Vestmannaeyjum.
„Ferðamálasamtökin hafa undanfarin ár sameinast um að efla ímynd og kynna Vestmannaeyjar með það eitt að markmiði að fjölga ferðamönnum til Vestmannaeyja. Það hefur tekist mjög vel og árangurinn sem betur fer mælanlegur. Fyrirtæki í Ferðamálasamtökunum samþykktu verulega hækkun félagsgjalda á sínum tíma til eflingar markaðsstarfsins. Vinnuframlag Ferðamálasamtakana er allt unnið í sjálfboðavinnu.
Þetta starf hafa bæjaryfirvöld stutt fjárhagslega. Kostnað við framleiðslu markaðsefnis og birtinga, sem hefur skilað samfélaginu miklum tekjum í rekstri Herjólfs, Eldheima, Íþróttamiðstöðvarinnar og svo hafa tekjur hafnarinnar af komu skemmtiferðaskipa aukist verulega og aðrir innviðir styrkst umtalsvert.
Vestmannaeyjar eru stórkostlegt náttúrufyrirbæri með merkilega sögu og sterka innviði. Það er mikilvægt verkefni að kynna það ferðamönnum og helst á áhrifaríkan hátt. Þannig aukum við fjölbreytni í atvinnulífinu og eflum enn frekar innviði samfélagsins. Við hvetjum nýja og öfluga stjórnarmeðlimi til góðra verka og óskum þeim velfarnaðar við umsjón og stjórn á mikilvægu verkefni fyrir Vestmannaeyjar.” segir í tilkynningu þremenningana.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst