Marc Wilson til ÍBV
Marc Wilson er kominn með félagaskipti til ÍBV og gæti spilað með liðinu í sumar. Wilson lék með Þrótti Vogum í fyrra og eltir Hermann Hreiðarsson, þjálfara ÍBV, til Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í frétt á vefnum fotbolti.net

„Hann kom til landsins á fimmtudaginn og tók létta æfingu með okkur í dag. Mér sýnist hann vera nokkuð heill og virkar í þrusu standi. Það væri gaman ef hann væri „fully fit” og þá erum við að fá í honum gæðaleikmann inn í vörnina,” sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, við Fótbolta.net í dag.

Wilson er 34 ára gamall og á feril að baki með Portsmouth, Stoke, Bournemouth, WBA, Sunderland og Bolton. Hann hefur á ferlinum leikið bæði sem varnar- og miðjumaður. Á sínum tíma lék Wilson 25 landsleiki fyrir Írland. Á síðasta tímabili lék Marc tíu leikir með Þrótti Vogum í 2. deild.

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.