Margir atvinnulausir á meðan auglýst er eftir starfsfólki
DSC 5950
Áfram fjölgar íbúum í Eyjum.

Bæjarstjóri fór yfir stöðu atvinnuleysis og hlutabótaleiðar í Vestmannaeyjum á fundi bæjarráðs í gær. Þar kom fram að margir eru skráðir atvinnulausir á sama tíma og verið er að auglýsa eftir starfsfólki hjá mörgum fyrirtækjum í Vestmannaeyjum. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru 122 einstaklingar skráðir atvinnulausir í mars og apríl, en mest var atvinnuleysið í desember og janúar sl., þegar 140 einstaklingar voru skráðir atvinnulausir. Um 30 einstaklingar voru á hlutabótaleiðinni í mars og apríl.

Jafnframt greindi bæjarstjóri frá tvenns konar átaksverkefnum sem Vinnumálastofnun stendur fyrir í samvinnu við sveitarfélög á landinu, til þess að efla atvinnuþátttöku fólks. Annars vegar átakið Hefjum störf, sem snýr að atvinnuþátttöku fólks á atvinnuleysiskrá, þar sem Vinnumálastofnun leggur vinnuveitendum til allt að 473 þús. kr. auk 11,5% mótframlags í lífeyrissjóð fyrir hvern starfsmann í allt að sex mánuði. Hins vegar átakið Sókn fyrir námsmenn, þar sem Vinnumálastofnun leggur Vestmannaeyjabæ til samskonar upphæð og mótframlag í lífeyrissjóð fyrir allt að 12 námsmenn í allt að tvo og hálfan mánuð í sumar. Vestmannaeyjabær hefur þegar birt auglýsingu um ný störf fyrir námsmenn 18 ára og eldri í samræmi við átakið.

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.