Margrét Rós: Að skreyta sig með stolnum fjöðrum
Samgöngur skipta okkur Eyjamenn mjög miklu máli. Við höfum í mörg ár mátt berjast fyrir hverju einasta skrefi sem þokast hefur í rétta átt. Á þeirri vegferð hefur margoft sést hversu litla alúð þetta stóra mál hefur á meðal samgönguyfirvalda.
Flestir sem hafa fylgst með þessum málum vita að í útboði ríkiskaupa í júní árið 2016 var boðinn út rekstur og eignarhald nýrrar Vestmannaeyjaferju. �?ar var skýrt tekið fram að eftir að ný Vestmannaeyjaferja kemur til þjónustu, verði sama gjald í Landeyjahöfn og í �?orlákshöfn. Sem sagt, að ekki verði um aukakostnað að ræða þegar ferjan siglir til �?orlákshafnar.
�?að kemur mér því skringilega fyrir sjónir að sjá ráðherra og suma aðra stjórnmálamenn berja sér á brjóst, þegar örfáir mánuðir eru í nýtt skip, og eigna sér þessa ákvörðun sem tekin var af öðrum fyrir tæpum tveimur árum. Slíkt kallast einfaldlega að skreyta sig með stolnum fjöðrum.
�?hjákvæmilegt er að velta því fyrir sér hvort að þessi tilkynning ráðherra, eftir opnun Landeyjahafnar nú í mars, sé ekkert annað en útspil hans til þess að hylja þá staðreynd að hann ætlar í raun að skila auðu þegar kemur að því að taka þau alvöru skref sem kallað var eftir á fjölmennum borgarafundi fyrir skömmu.
Rétt er að minna ráðherra á að Eyjamenn vilja að Herjólfur verði rekinn sem hluti af þjóðvegakerfi landsmanna og að þjónustu verði hagað í samræmi við það. Almennur vilji okkar Eyjamanna er til að mynda að ferðum ferði fjölgað, að gjaldtaka sé sambærileg við það sem kostar að aka eftir þjóðvegum og að þjónusta sé stóraukin með hagsmuni heimamanna að leiðarljósi. Slíkt verður best gert með því að heimamenn sjálfir taki ábyrgð á þessum rekstri.
Margrét Rós Ingólfsdóttir

Nýjustu fréttir

Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Skemmtilegast að sauma í skólanum
Gaman að vera byrjaður í skólanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.