Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Kristianstad eitt stig í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær þegar hún skoraði úr vítaspyrnu á síðustu andartökum leiksins við Sunnanå. Heimaliðið komst yfir í leiknum en stelpurnar hennar Elísabetar Gunnarsdóttur þjálfara, gáfust ekki upp og fengu víti þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma og úr spyrnunni skoraði Margrét Lára, 1:1.